Hugmynd um fjölgun kjördæma

Höfundur: Marinó G. Njálsson

Í annað sinn á þremur árum, kemur Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fram með þá hugmynd að minnka kjördæmin á landsbyggðinni. Hann vill líka jafna vægi atkvæða.

Það er fínt að ræða þessar hugmyndir, en ég get ómögulega séð að hægt sé að ná báðum markmiðum, þ.e. að jafna vægi atkvæða og tryggja að þingsæti dreifist á flokka eftir atkvæðamagni, nema fjölga jöfnunarþingsætum gríðarlega.

Fyrst þarf að finna út hver fjöldi þingmanna þyrfti að vera í landsbyggðakjördæmunum miðað við jöfnun á væri atkvæða. Með jöfnunarmanni var NV með 8 þingmenn og að baki hverjum var 2.685 á kjörskrá, NA var með 10 og 2.963 að baki hverjum, SU var líka með 10 og 3.546 á kjörskrá að baki hverjum, SV 13 þingmenn og 5.255 að baki hverjum, RN 11 með 4.185 og RS líka 11 en 4.166 að baki hverjum á kjörskrá.

Til að jafna vægi atkvæða mættu þingmenn NV bara vera 5 eða 6, NA fengi 8, SU fengi 9, SV 16 eða 17, RN og RS 12 hvort. Með 5 þingmenn í NV væru 4.296 á kjörskrá að baki hverjum þingmanni, sem væri mesti fjöldi meðal kjördæma landsins, en með 6 væri fjöldinn 3.580 og jafnframt minnsti fjöldinn. Í þessu tilfelli snerist þetta þó aðeins um hvort 63. þingmaðurinn færi í NV eða SV.  Í útreikningum hér fyrir neðan er miðað við að 63. þingmaðurinn fari í annað af NV-kjördæmunum.

Þá er að skipta NV, NA og SU í tvö kjördæmi hvert. NV-1 og NV-2 fengju þá 3 þingmenn hvort (miðað við að 63. þingmaðurinn færi þangað), NA-1 og NA-2 fengju 4 þingmenn hvort, meðan SU-1 og SU-2 fengju annars vegar 4 og hins vegar 5 þingmenn.  Reykjavíkurkjördæmin væru með 12 hvort og SV með 16 þingmenn.

Þá eru það jöfnunarþingmennirnir, því þeir eru notaðir til að dreifa þingmönnum á flokka, þannig að fjöldinn þingmanna á flokk sé sem næst því að vera í samræmi við fylgi á landsvísu. Eðlilegast er að byrja á því að skoða að vera með 1 jöfnunarþingmann í hverju kjördæmi á landsbyggðinni og síðan láta restina af jöfnunarþingmönnum vera úr kjördæmunum þremur á höfuðborgarsvæðinu.  Til að finna út hve marga jöfnunarþingmenn þarf, er nauðsynlegt að sjá hvernig þingsæti hefðu dreifst, ef þetta fyrirkomulag hefði verið notað í síðustu kosningum

Forsenda útreikninga er:

1.        Atkvæði í NV-1 og NV-2 dreifist eins og í NV, NA-1 og NA-2 dreifist eins og í NA og SU-1 og SU-2 dreifist eins og í SU í síðustu kosningum.

2.        Landsbyggðakjördæmin sex hafi öll einn jöfnunarþingmann, en aðrir þingmenn þeirra séu kjördæmakjörnir.

3.        Fjöldi kjördæmakjörinna þingmanna í SV, RN og RS sé sami og í síðustu kosningum, þannig að jöfnunarþingmenn í SV verða 6, en þrír í hinum tveimur.  Voru áður sex í það heila.  Gera þarf næmisgreiningu til að ákveða endanlegan fjölda, en útreikningar mínir sýna að þetta virðis nokkuð rétt skipting.

Síðast leit þetta svona út:

Tafla 1 - Skipting þingsæta eftir kosningar 2021

Ef úrslit síðustu kosninga í hverju kjördæmi eru notuð til að reikna út samkvæmt nýrri aðferð, þá fæ ég eftirfarandi niðurstöðu (sömu flokkar og sama fylgi, gert ráð fyrir að flokkar fái sama fylgi í báðum hlutum uppskiptra kjördæma):

Tafla 2 - Úrslit 2021 miðað við fjölgun kjördæma

Séu töflurnar bornar saman, þá skiptir eftirfarandi mestu máli:

·        Aðeins tveir flokkar eiga kjördæmakjörna þingmenn í NV-kjördæmunum i staðinn fyrir fjóra áður.

·        Þrír flokkar ná kjördæmakjörnum þingmönnum í NA-kjördæmunum í staðinn fyrir sex áður.

·        Í SU kjördæmunum fækka flokkum um tvo sem eiga kjördæmakjörna þingmenn.

Við þetta myndast lýðræðishalli í kjördæmunum, þar sem þau eiga ekki lengur fjölbreyttan hóp þingmanna.  Vissulega á eftir að sjá hvernig jöfnunarmenn dreifast, en ég fer ekki svo ítarlega í úthlutunina.

Þess fyrir utan:

·        Kjördæmakjörnum þingmönnum fækkar um sex.

·        B missir tvo kjördæmakjörna þingmenn úr NV og NA, vegna fækkunar þingmanna.

·        F missir kjördæmakjörna þingmenn í NV og NA en fær einn í viðbót í SU.

·        M missir kjördæmakjörinn þingmann úr hvoru af NA og SU.

·        S missti báða landsbyggða þingmenn sína sem kjördæmakjörna.

·        Kjördæmakjörinn þingmaður V færist frá NV í annað af NA-kjördæmunum.

Miðað við fylgi á landsvísu, hefði Sjálfstæðisflokkurinn grætt 1 þingmann með þessari skiptingu í síðustu kosningum, því hann fær ekkert frekar jöfnunarþingsæti með henni en með þeirri gömlu miðað við gefnar forsendur.  Spurningin er hins vegar hvernig þetta kemur út hjá öðrum flokkum og þá er bara horft til kjördæmakjörinna þingmanna í bili.

Næst þarf að taka J út úr jöfnunni og þá lítur myndin svona út:

Tafla 4 - Kjördæmakjörin þingsæti og reiknuð þingsæti án J-lista

Við úthlutun jöfnunarþingsæta er í einföldu máli notuð svo kölluð d‘Hondt regla til að finna út hvaða flokkur á rétt á næsta þingmanni inn.  Hún er þannig, að atkvæði á landsvísu eru tekin saman og upp í hana er deilt með fjölda þegar úthlutaðra þingsæta flokks og við þá tölu er bætt einum.  Þannig að miðað við tölur að ofan væri upphafstala B-lista 11, C-lista 4, o.s.frv.  Svo er til skiptist fundinn sá þingmaður, sem er með flest atkvæði að baki sér og sá sem er með hæsta hlutfalslega fylgið, þar til búið er að úthluta öllum jöfnunarsætunum.  Ekki er ætlunin að finna út hvaða þingmenn fá þingsæti heldur hve marga þingmenn flokkarnir hefðu fengið í síðustu kosningum miðað við fylgi og úthlutun samkvæmt d‘Hondt reglunni.

Taflan hér fyrir neðan sýnir d‘Hondt tölur hvers lista miðað við að 1 til 4 þingmenn myndu bætast við.  Tala flokks sem tryggir honum jöfnunarþingsæti er feitletruð.  Aftast er síðan heildarþingstyrkur flokks eftir þessa úthlutun og hvernig þetta var síðast samkvæmt núverandi kjördæmaskipan.

Tafla 5 - Úthlutun jöfnunarþingsæta og endanleg þingmannatala

Vissulega væri hægt að taka J-lista með og sleppa 5% þröskuldinum fyrir jöfnunarþingsæti.  Ef enginn væri þröskuldurinn hefði flokkurinn fengið tvö þingsæti, sem er jafnt þingstyrk M-listans eftir brothlaup eins þingmanna þeirra.

Munurinn á því að vera með sex kjördæmi eða níu, er því að stærsti flokkurinn hagnaðist um eitt þingsæti og náði því (eftir krókaleiðum) af þeim næst stærsta.

Hafa skal í huga, að hér er miðað við 15 jöfnunarsæti, en ekki er víst að það verði niðurstaðan. Þar sem allir flokkar eru að fá jöfnunarsæti, þá væri hægt að skoða annan fjölda slíkra sæta, en hafa verður í huga, að mjög litlu munar á eina jöfnunarmanni D-lista og fjórða jöfnunarmanni S-lista.

Svo dæmi sé tekið, væru kjördæmakjörin þingsæti í SV 12, þá hefði það 12. farið til D-lista síðast, það 13. til V og það 14. til D-lista.  Tíunda kjördæmiskjörna þingsæti í RN hefði farið til D-lista, meðan það tíunda í RS hefði farið til S-lista.  Það gæti því gerbreytt niðurstöðum kosninga að fækka jöfnunarsætum í SV, RN og RS, þegar sæti eru flutt til í þeim tilgangi að jafna atkvæðavægið.  Á sama hátt mætti gera öll þingsæti á landsbyggðinni kjördæmasæti og hefði einhver hringekja farið í gang.

Hver staða flokkanna verður í næstu kosningum er hins vegar óljóst.  Í síðustu könnunum er staða Samfylkingarinnar mjög góð meðan fylgi Sjálfstæðisflokks hefur dalað umtalsvert.  Að fara í einhverja leikjafræði með fjölda jöfnunarsæti gæti því hæglega komið í bakið á þeim sem vilja nota breytingar til að skara eld að eigin köku.

Það sem skiptir mestu máli við kjördæmaskiptinguna, er að kjósendur geti sagt að þeir hafi fulltrúa á þingi, að kjördæmi hafi þokkalega breiðan hóp fulltrúa á þingi, dregið sé úr misvægi atkvæða eins og eðlilegt þykir og að fjöldi þingsæta dreifist á þingflokka í samræmi við atkvæðamagn á landsvísu.  Kosningafyrirkomulag á ekki að vera misnotað af stórum flokkum til að styrkja stöðu þeirra, sama hver flokkurinn er.

Ég vil vara við einu varðandi að skipta landsbyggðakjördæmunum upp. Með því mun myndast lýðræðishalli í kjördæmunum, þar sem hugsanlega bara 2-3 flokkar muni vera með þingmenn í hverju kjördæmi. Það mun loka samskiptaleiðum (eða lengja) kjósenda einstakra flokka að áhrifafólki innan flokkanna. Núna eiga 4, 6 og 5 flokkar kjördæmakjörna þingmenn í NV, NA, og SU. Eftir breytingu er líklegt að það verði 2, 3 og í besta falli fjórir í öðru SU-kjördæminu. Ég get ekki séð, að það teljist til framfara, að fækka þeim sjónarmiðum sem kjördæmin eiga í þingsölum.

Ég er tilbúinn að taka þátt í vinnu vegna breytinga á kjördæmaskipan.