Vandi Íbúðalánasjóðs

Það heitir að höggva í sama knérunn, þegar menn endurtaka sömu vitleysuna aftur og aftur. Þannig er farið með umræðuna um kosningaloforð Framsókn fyrir alþingiskosningarnar árið 2003 um að fyrir lok kjörtímabilsins yrði boðið upp á 90% lán miðað við fasteignamat og því að Íbúðalánasjóður hafi orðið að byrði á þjóðinni. Þetta er rangt, en hafið mig ekki fyrir því, ég hef bara kynnt mér málin, lesið samtímaefni og tengt hlutina saman.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar

Hér er fyrst tilvitnun í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 28. nóvember 2005:

"Helstu niðurstöður Ríkisendurskoðunar eru þessar:

Frumorsökina að baki þeim vanda, sem Íbúðalánasjóður átti við að glíma í formi mikils innstreymis fjár, má annars vegar rekja til skiptiútboðs sjóðsins, sem ákveðið var að standa fyrir við kerfisbreytinguna hinn 1. júlí 2004 og hins vegar til óvæntrar samkeppni á húsnæðislánamarkaði, sem sjóðurinn gat ekki séð fyrir. Alls námu uppgreiðslurnar tæpum 157,6 milljörðum króna á tímabilinu september 2004 til júlíloka 2005. Þær höfðu í för með sér umtalsverða röskun á jafnvægi milli eigna og skulda sjóðsins og fólu jafnframt í sér mikla hættu á fjárhagslegum áföllum ef ekki yrði gripið til sérstakra ráðstafana."

Í skýrslunni er tvisvar minnst á 90% veðhlutfall, en í hvorugt skiptið var verið að vísa í útlán Íbúðalánasjóðs til einstaklinga. Á þessum tíma fóru reyndar flest 90% lán Íbúðalánasjóðs til leiguíbúða og hafði sú heimild komið í lög um húsnæðislán talsvert en kosningaloforðið var gefið. Fyrir þá sem ekki vita, þá byrjaði Húsnæðisstofnun ríkisins að veita 90% lán árið 1986.

Bankarnir veita húsnæðislán

KB banki kom inn á húsnæðislánamarkaðinn í ágúst 2004. Sú markaðsherferð, sem þá fór í gang, hafði verið í undirbúningi örugglega frá árinu 2003 og líklega hafist fljótlega eftir að Búnaðarbanki Íslands fór í gegn um seinni einkavæðingarfasann árið 2002, sem lauk undir áramót 2002/2003. Hinir einkavæddu bankar fóru strax að hugsa sér gott til glóðarinnar að keppa við Íbúðalánasjóð, en meðan þeir voru enn að hluta í ríkiseign, þá var að einfaldlega eigendastefnan að bankarnir ættu ekki að keppa við sjóðinn.

Á tímabilinu september til desember 2004 lánuðu bankarnir um 115 milljarða til íbúðakaupa, en 90 milljónir í ágúst. Þessi hamagangur hélt áfram næstu mánuði og leiddi til mikillar hækkunar húsnæðisverðs. Alþingi gaf Íbúðalánasjóði heimild til að veita lán allt að 90% af fasteignamati í desember 2004. Líklegast hefur 90% af fasteignamati verið á bilinu 60-70% af markaðsverði. Bankarnir veittu hins vegar á þessum tíma lán upp á allt að 100% af markaðsverði.

Bera fór á gagnrýni í þjóðfélaginu á þessum miklu hækkunum á húsnæðisverði og þá datt einhverjum almannatengli það í hug, að kenna 90% loforði Framsóknar um. Hamrað var nægilega mikið á þessu, þar til skáldskapurinn var orðinn að sannleika.

Soltinn markaður

Sjaldan er minnst á ástæðuna fyrir því að fasteignaverð hækkaði svona mikið. Áður en bankarnir komku á markaðinn, þá voru hámarkslán Íbúðalánasjóðs á bilinu 16-18 milljónir og höfðu hækkað úr ca. 13 milljónum á 5 árum. Þessi fjárhæð dugði varla fyrir 4 herbergja íbúð í fjölbýlishúsi, hvað þá einhverju stærra. Fasteignamarkaðurinn var því í spennitreyju. Stórar eignir hreyfðust hægt og þá fyrir upphæð sem var rétt yfir þessum 20 milljónum króna, þó fasteignamat og brunabótamat þeirra væri mun hærra. Þegar bankarnir komu inn á markaðinn, þá notuðu þeir markaðsverð sem viðmið og þar með fór að fást eðlilegt verð fyrir stærri eignir, það togaði næsta flokka eigna upp, sem togaði þann þriðja. Allt í einu fór að myndast eðlilegt verðbil milli stærðarflokka.

Lánsmörk Íbúðalánasjóðs voru hins vegar rétt um 18 milljónir og því var hækkun húsnæðisverðs ekki lánum sjóðsins að kenna. Ekki einu sinni kosningarloforði Framsóknar, því það átti ekki að koma að fullu til framkvæmdar fyrr í lok kjörtímabilsins, þ.e. árið 2007. Ef eitthvað var, þá má frekar segja að skortur á betri fjármögnun húsnæðiskaupa á árunum á undan hafi verið sökudólgurinn, því það olli því að fólk var fast í eignum sínum.

Fleiri sömu skoðunar

Ríkisendurskoðun var ekki ein um að komast að þeirri niðurstöðu 2004 og 2005 að skiptiútboð nýs fjármögnunarkerfis sjóðsins var vandamálið. Ég hef áður vísað í grein Grétar Júníusar Guðmundssonar í Morgunblaðinu 19. desember 2004 og hvet áhugasama til að lesa hana.

En það eru fleiri áhugaverðar heimildir. Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð er í 9. kafla fjallað um þessar kerfisbreytingar við fjármögnun sjóðsins. Þar kemur fram að nefnd var skipuð um þessa kerfisbreytingu 28. mars 2001, þ.e. heilum tveimur árum áður en Framsókn lofaði 90% lánum af fasteignamati. Það var Geir H. Haarde sem skipaði nefndina. Erindisbréf nefndarinnar var að skoða opinbera útgáfu á skuldabréfum svo hún gæti verið vaxtamyndandi á markaði. Það þýddi þá um leið, að bréfin máttu ekki vera uppgreiðanleg. Þetta var því stefnumótun ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar sem fjármálaráðherra átti að fylgja eftir. Öll skuldabréfaútgáfa ríkisins átti að fara í einn farveg og sá farvegur var Íbúðalánasjóður.

Nefnd Geirs og mistökin

Að mál hafi þróast, eins og gerði, var líklegast vegna þess, að í nóvember 2003, þegar nefndin skilaði áliti sínu, þá datt a.m.k. ekki nefndarmönnum í hug, þó þeir hefðu átt að gera það, að bankarnir myndu taka yfir húsnæðislánamarkaðinn og það með hvelli. Breytingarnar á verðbréfaútgáfunni voru því allt frá upphafi mjög áhættusöm aðgerð, þó ekki væri nema vegna þess að óuppgreiðanleg skuldabréf áttu að vera til áratuga. Menn sátu og horfðu á gríðarlegar breytingar á íslensku samfélagi, og ekki síst á fjármálamarkaði, en verðbréfin áttu að vera í tómarúm óbreytanleikans í áratugi.

Vandi ÍL-sjóðs, eins og þessi hluti Íbúðalánasjóð hefur verið kallaður, er fyrst og fremst að kenna skammsýni nokkurra opinberra starfsmanna að kenna. Fólks sem Geir H. Haarde skipaði í nefndi til að skoða hvernig breyta mætti útgáfu opinberra skuldabréfa. Engum þeirra datt í hug að spyrja: Hvað ef Íbúðalánasjóður hættir að vera lánveitandi númer eitt? Hvað ef lántakar greiða lánin upp í slíku mæli að peningar söfnuðust upp hjá sjóðnum?

Þessu til viðbótar voru önnur mjög dýrkeypt mistök, en þau voru að fjármálaráðherra fannst mikilvægara að halda skuldabréfaútgáfu áfram, þó Íbúðalánasjóður væri með allar skúffur, kodda og dýnur full af peningum.

Mistökin voru því annars vegar sjálfsöryggið að Íbúðalánasjóður yrði aðallánveitandi til aldurs og ævi og hins vegar að gefa út skuldabréf að óþörfu. Hvorugt hefur nokkuð með kosningaloforð Framsóknar að gera.