Samningsmarkmið Íslands

Fullyrðing: Við vitum ekki hvers íslensk stjórnvöld ætla að krefjast

Rangt!

Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins segir:

„Við vitum sem sagt býsna vel hvað aðild að Evrópusambandinu felur í sér. Það sem við vitum ekki er hvaða sérlausnum Ísland gæti náð fram í aðildarviðræðum og þar með hvernig endanlegur samningur myndi líta út. Þar finnst mér vanta mikilvægar upplýsingar áður en við kjósum: Hvað ætlar Ísland sjálft að leggja á samningaborðið? Hvaða kröfur verða ófrávíkjanlegar af Íslands hálfu? Hvar liggja rauðu línurnar í sjávarútvegi, landbúnaði, orkumálum og öðrum grundvallarhagsmunum? Hvað erum við tilbúin að semja um? Áður en við samþykkjum að stjórnvöld hefji að nýju aðildarviðræður eigum við að vita hvers þau ætla að krefjast og hvað þau telja ófrávíkjanlegt. Það sem er óopnað í þessari pakkalíkingu er því ekki Evrópusambandið. Það er samningsafstaða Íslands.“

Þetta er nauðsynlegt að leiðrétt, því samningsafstaða Íslands hefur verið skýr í mikilvægustu málaflokkum frá árinu 2009. Henni var ekki breytt núna. Það “eina” sem þarf að gera, er að lesa skjalið 38. mál fá 137. löggjafarþingi. Það inniheldur þessar upplýsingar. Þáverandi utanríkismálanefnd vann þetta skjal í sameiningu, þ.e. þvert á flokka, og breytingartillögur minni hluta voru fáar.

Fyrst er efnisyfirlit skjalsins:

I. Meðferð málsins í nefndinni (verður ekki fjallað frekar um þennan hluta)

II. Samstarf Íslands við önnur Evrópuríki (verður ekki fjallað frekar um þennan hluta)

III. Stækkun ESB og möguleg aðild Íslands að sambandinu (verður ekki fjallað frekar um þennan hluta)

IV. Yfirgripsmikil vinna undanfarinna ára (verður ekki fjallað frekar um þennan hluta)

V. Ferli umsóknar um aðild að ESB (verður ekki fjallað frekar um þennan hluta)

i. Formlegt upphaf.

ii. Kaupmannahafnarviðmiðin

iii. Uppbygging viðræðna.

iv. Greining á löggjöf.

v. Formlegar samningaviðræður.

vi. Texti aðildarsáttmála undirbúinn.

vii. Aðildarsamningur, fullgildingarferli og þátttaka í starfi ESB.

VI. Skipulag viðræðna, hlutverk aðila og upplýsingagjöf.

i. Skipulag viðræðna og hlutverk framkvæmdarvaldsins.

Í þessum undirkafla segir m.a.: “..fyrirhugað er að haga skipulagi aðildarviðræðna […] þannig að endanlegar ákvarðanir í málefnum tengdum aðildarviðræðum verði í höndum ríkisstjórnarinnar. Í því felst m.a. að allar ákvarðanir um samningsafstöðu Íslands á einstökum sviðum verða samþykktar í ríkisstjórn að loknu samráðsferli sem nánari grein er gerð fyrir í þessu áliti…Meiri hlutinn ítrekar nauðsyn þess að til ráðgjafar í ferlinu verði samráðshópur sem skipaður verði fulltrúum allra stjórnmálaflokka á Alþingi, t.d. fulltrúum úr utanríkismálanefnd, auk breiðs hóps hagsmunaaðila.”

ii. Hlutverk Alþingis.

iii. Aðkoma hagsmunaaðila.

iv. Upplýsingamiðlun.

v. Undirbúningur fyrir mögulegar viðræður um aðild Íslands að ESB.

vi. Skilyrt umboð.

VII.     Greinargerð um meginhagsmuni Íslands í aðildarviðræðum við ESB.

Þetta er umfangsmesti kaflinn og verður fjallað betur um innihald hans neðar í skjalinu og verður því ekki fjallað frekar um hann hér.

VIII.     Þjóðhagsleg áhrif aðildar að ESB. (verður ekki fjallað frekar um þennan hluta)

IX. Stjórnskipuleg álitamál við aðild að ESB. (verður ekki fjallað frekar um þennan hluta)

i. Staðfestingarferlið. (Við þetta ferli hefur verið bætt seinni þjóðaratkvæðagreiðslu)

ii.     Stjórnarskráin.

iii. Fullveldið og aðild að ESB.

iv.     Úrsagnarréttur.

X.     Menning, þjóðtunga og aðild að ESB. (verður ekki fjallað frekar um þennan hluta)

 

Kafli VII

Í þessum kafla eru sett samningsmarkmið Íslands. Hér fyrir neðan er mín samantekt á þessum markmiðum og ætla ég ekki að útloki einhverja mistúlkun eða ég hafi litið framhjá atriðum sem öðrum finnst að ættu að vera þarna. Einnig er bætt við, eins og ég tel eiga við, athugasemdum eða ályktunum meiri hluta utanríkismálanefndar. Þó meiri hlutinn sé skrifaður fyrir álitinu, þá stóð öll nefndin almennt að því sem í því stendur.

i. Orku- og auðlindamál.

Hér kemur fyrst fram mjög mikilvægt atriði: “..fyrirkomulag eignarhalds náttúruauðlinda er ekki viðfangsefni ESB heldur alfarið á hendi aðildarríkjanna þar sem innri markaðslöggjöfin tekur ekki á eignarhaldi.”

  • Meiri hlutinn leggur áherslu á að eignarhald og nýting vatns- og orkuauðlinda takmarkast ekki af reglum ESB umfram það sem þegar er á grundvelli meginreglna á sviði umhverfisréttar.

  • Meiri hlutinn leggur áherslu á að náttúruvernd og sjálfbær nýting náttúruauðlinda landsins eigi áfram að vera meðal grundvallarhagsmuna Íslendinga.

  • Tryggt verði að Íslendingar geti nýtt endurnýjanlegar vatnsafls- og jarðhitaauðlindir sínar til orkuframleiðslu og fjölbreytts iðnaðar.

  • Minnir meiri hlutinn á að við gerð aðildarsamnings Norðmanna á sínum tíma var sett inn bókun um að þeir héldu yfirráðum yfir öllum sínum auðlindum.

  • Meiri hlutinn bendir einnig á að Ísland hefur á grunni EES-samningsins tekið upp regluverk ESB á þeim sviðum sem snerta vatns- og orkuauðlindir…Reglurnar lúta ekki að eignarhaldi auðlinda eða hvernig þær eru nýttar, innan ramma umhverfisreglna, eða hvernig andvirði þeirra er ráðstafað. Þannig kemur ekki annað fram en að forræði þjóðarinnar yfir auðlindum í efnahagslögsögu landsins, í jörðu og á hafsbotni, verði að fullu tryggt og er það í samræmi við skilning meiri hlutans.

  • Meiri hlutinn leggur áherslu á að Ísland geri fyllilega skýrt við samningaviðræður að ekki komi til greina að sáttmálar ESB mæli fyrir um eignarhald á þeim auðlindum er hér um ræðir eða nýtingu þeirra umfram það sem umhverfisreglur á hverjum tíma mæla fyrir um.

  • Allar bollaleggingar um sameiginlega nýtingu eða annað slíkt væru óásættanlegar fyrir Ísland.

ii. Sjávarútvegsmál.

  • forræði yfir sjávarauðlindinni með sjálfbæra nýtingu að leiðarljósi

  • forræði í stjórn veiða og skiptingu aflaheimilda innan íslenskrar efnahagslögsögu sem byggð er á ráðgjöf íslenskra vísindamanna

  • haldið verði í möguleika á því að takmarka fjárfestingar erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegi

  • skýr aðkoma Íslendinga að mótun sjávarútvegsstefnu ESB í framtíðinni

  • undirstrika þjóðhagslegt mikilvægi atvinnugreinarinnar og tryggja að breytingar sem verða á fiskveiðistjórn hér á landi verði að undirlagi íslenskra stjórnvalda

  • forræði þjóðarinnar verði tryggt yfir sjávarauðlindinni og þannig búið um hnútana að framlag sjávarútvegsins til efnahagslífsins haldist óbreytt

  • skoða að skilgreina sérstakt íslenskt fiskveiðistjórnarsvæði

  • ekki veita erlendum fiskveiðiskipum réttindi til veiða innan íslenskrar efnahagslögsögu úr staðbundnum íslenskum stofnum

  • mikilvægt að leggja áherslu á meginreglur hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna, m.a. fullveldisréttinn um 200 mílna fiskveiðilögsögu,

  • réttur Íslendinga til að stýra sókn í veiðistofna er byggist á sjálfbærri þróun, ráðgjöf sérfræðinga og veiðireynslu (orðað á annan hátt ofar)

  • algerlega útilokað að Ísland taki yfir reglur ESB er lúta að brottkasti

  • Íslendingar fari með samningsforræði við stjórn veiða úr deilistofnum eins og hægt er

  • tryggja þarf að sú hlutdeild (úr deilistofnum) sem þegar hefur verið samið um haldist

  • hvað varðar erlenda fjárfestingu í sjávarútvegi telur meiri hlutinn grundvallaratriði að haft verði náið samráð við sjávarútveginn um afstöðu Íslands

  • frumskylda samningamanna Íslands sé að tryggja að afrakstur auðlindarinnar falli til á Íslandi

  • ekki verði veitt svigrúm fyrir erlendar útgerðir að fjárfesta hér á landi þannig að nýting auðlindarinnar og afrakstur hennar færist í raun úr landi

  • mögulega mætti setja ákvæði í lög um efnahagsleg tengsl milli útgerðar og vinnslu við heimahöfn skips, auk ákvæða sem binda heimildir til að fjárfesta í sjávarútvegi við búsetu.

iii. Landbúnaðar- og byggðamál.

  • Meiri hlutinn leggur áherslu á að skýr stuðningur við mjólkurframleiðslu og annan hefðbundinn búskap verði eitt af samningsmarkmiðum Íslands.

  • mikilvægt að leita allra leiða til að búa svo um hnúta að stuðningi við landbúnað verði sem minnst raskað þótt ljóst sé að ákveðin breyting í uppbyggingu styrkjakerfisins muni eiga sér stað með aðild að sambandinu

  • Meiri hlutinn telur eðlilegt að horft verði til þess hvort skynsamlegt geti verið að fara fram á takmarkanir á rétti þeirra sem ekki hafa lögheimili og fasta búsetu á landinu til þess að eignast fasteignir hér á landi með tilliti til þess að viðhalda búsetu í sveitum.

  • Meiri hlutinn telur rétt að landbúnaðinum verði skapað svigrúm til aðlögunar að ESB sérstaklega með tilliti til ólíks styrkjakerfis og hnattrænnar stöðu.

  • ..meiri hlutinn leggur áherslu á matvælaöryggi

  • ..hér á landi eru búfjárstofnar afar viðkvæmir fyrir mögulegum utanaðkomandi sýkingum og mikilvægt er að íslensk stjórnvöld geti gripið til nauðsynlegra ráðstafana til verndar íslenskum búfjárstofnum

  • Meiri hlutinn telur rétt að kröfu um að undanþágu vegna viðskipta með lifandi verði framhaldið fyrir Ísland

  • Tryggja þarf stöðu landbúnaðarins eftir sem áður.

  • Aðkoma hagsmunaaðila að styrkjakerfi ESB er afar mikilvæg í byggðamálum líkt og í landbúnaðarmálum að mati meiri hlutans.

  • Afar brýnt er að gæta hagsmuna landsbyggðarinnar í þessu sambandi og tryggja greiðan aðgang að því fjármagni sem hér um ræðir.

  • ..meiri hlutinn áréttar að full ástæða er til að ætla að unnt verði að skilgreina landið allt sem harðbýlt svæði.

iv. Umhverfismál.

Bent er á að þetta tilheyri nánast allt EES-samningnum.

  • Umhverfislöggjöf ESB hefur að miklu leyti verið tekin upp á Íslandi í gegnum EES-samninginn en umhverfismál falla óbeint undir hann vegna tengingar og skörunar við önnur réttarsvið hans.

  • Ísland hefur með EES-samningnum skuldbundið sig til aðildar að viðskiptakerfi ESB um losunarheimildir fyrir gróðurhúsalofttegundir sem mun frá og með 2012 hafa áhrif á losunarreglur á Íslandi. Ekki verður séð að mikill munur sé á regluverki um losun gróðurhúsalofttegunda á sviði ESB-réttar og EES-samningsins.

  • Meiri hlutinn áréttar að Ísland hefur gert ýmsa fyrirvara við Bernarsáttmálann og telur hann ekkert því til fyrirstöðu að halda slíkum fyrirvörum.

  • Meiri hlutinn leggur áherslu á að við mótun samningsmarkmiða á sviði veiða á sjávarspendýrum verði sérstaklega metið hvernig halda megi opnum möguleikum að halda veiðum áfram, með vísan til aldalangrar hefðar.

v. Atvinnu- og iðnaðarmál.

Ekki eru beint settar fram kröfur í þessum kafla, enda hefur EES-samningurinn dekkað þetta og gert ráð fyrir að engin breyting verði á.

vi. Almannaþjónusta og félagsleg mál.

  • Að mati meiri hlutans er það grundvallaratriði í þessu efni að hvert og eitt ríki geti haldið ákvörðunarvaldi um skipulag sinnar almannaþjónustu að því tilskildu að allir íbúar viðkomandi aðildarríkis fái notið þjónustu og sitji við sama borð.

  • Meiri hlutinn telur mikilvægt að Ísland gæti þess að ekki verði lengra gengið í samræmingu reglna á sviði almannaþjónustu og haldi því t.d. fast á lofti að hugsanleg samræming á reglum um þjónustu hafi ekki áhrif á það rekstrarform sem ríki kunna að velja sér á almannaþjónustu af þessu tagi.

  • Meiri hlutinn ítrekar að EES-samningurinn gerir það að verkum að regluverk ESB um réttindi launafólks eru að verulegu leyti þegar hluti af íslenskum lögum og reglum.

  • Meiri hlutinn telur rétt að hafður verði í huga sá árangur sem náðst hefur á Íslandi til að rétta stöðu kynjanna.

vii. Gjaldmiðilsmál.

  • Það er álit meiri hlutans að komi til aðildarviðræðna beri að leggja kapp á að viðræður um gjaldmiðilsmál verði forgangsverkefni í viðræðuferlinu og í því eigi að leita eftir samkomulagi við ESB og ECB um stuðning við krónuna.

viii. EES-mál.

  • Undanþágur, aðlaganir og sérlausnir: Nefndin aflaði sér almennra upplýsinga um þær undanþágur, aðlaganir og sérlausnir sem íslensk stjórnvöld hafa sóst eftir og náð fram í tengslum við EES-samninginn.

  • Meiri hlutinn telur að þetta séu mikilvægar upplýsingar og líta beri til þessara efnisatriða sem fordæmis um hvernig mætti semja að nýju um þessi mál í aðildarviðræðum við ESB. Þetta eru: dýraheilbrigði, takmarkanir á fjárfestingu útlendinga í íslenskum sjávarútvegi, reglur um flugvernd vegna innanlandsflugs, orkunýting bygginga, sumartími, tilskipanir ESB á svíði umhverfismála (s.s. undanþágur fyrir fráveitur, sorpbrennslu (eru líklega útrunnar)).

ix.     Öryggis- og varnarmál.

  • Ísland mun undir engum kringumstæðum koma á innlendum her eða taka þátt í samstarfi herja.

  • Af þeim sökum er einnig eðlilegt að Ísland standi utan Evrópsku varnarmálastofnunarinnar (EDA), líkt og Írar hafa kosið að gera, enda þátttaka í henni valkvæð.

  • Meiri hlutinn áréttar að í þessu felst að ríki verður hvorki þvingað til friðargæslu né hernaðaraðgerða, né til að fylgja ákveðinni stefnu.

  • Nefndin kynnti sér stefnu Íslands, áherslur og markmið í þróunarsamvinnu og telur þau falla að stefnu og markmiðum ESB.

x. Skatta- og tollamál.

  • Hvað skattlagningu innan aðildarríkja ESB varðar er hún alfarið í höndum ríkjanna sjálfra, bæði hvað varðar einstaklinga og fyrirtæki.

  • Meiri hlutinn leggur áherslu á að Ísland haldi því til haga í samningaviðræðum við ESB að áfram verði heimilt að skoða og stöðva sendingar með ólögleg fíkniefni, t.d. á grundvelli öryggis- og löggæsluhagsmuna.

xi. Fjármál og fjárlög ESB.

Þessi undirkafli er ekki með neinum kröfum af hálfu Íslands.

 

Þetta er stytting á langum texta. Mörg atriði eru skýrð ítarlega í honum, en önnur lítið sem ekkert. Þar sem kaflar aðildarsamningsins innihald 35 þætti, þá vantar enn mikið upp á. Margir þeirra hafa þegar verið innleiddir af hálfu Íslands í gegn um EES-samninginn eða innihalda sambærilega ákvæði og eru í honum. Aðrir fjalla um leikreglur, stjórnskipulag, þingmenn og æðstu stjórnendur sambandsins.

Vona að fólk geti nýtt sér þetta til að finna kröfur Íslands og að ég tal nú ekki um rauðar línur.