Að festast í ESB

Fullyrðing: Já þýðir að Ísland festist í ESB

Ólíklegt

Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, telur að Já í ágúst þýði að innganga Íslands í ESB sé bara formsatriði og ekki verði aftur snúið. Jafnframt segir hann að með því festist Ísland í ESB.

Nú vill svo til, að Norðmenn hafa tvisvar lokið aðildarviðræðum við ESB, en norska þjóðin í bæði skiptin hafnað aðild. Baudenbacher kýs að líta fram hjá því atriði. Hann vísar á bug, að framundan sé hlutlaus upplýsingaöflun, þrátt fyrir að þannig hafi verið staðið að málum 2009-13.

Baudenbacher gerir ráð fyrir, að illur vilji verði hjá viðsemjendum Íslands og þeir munu beita klækjum til að þvinga landið inn í ESB. Ekki veit ég hvað fær hann til að draga slíka ályktun, en auðvitað ber ekki að útiloka neitt. Alþingi samþykkti hins vegar þingsályktunartillögu sem er frekar skýr um það ferli sem færi í gang verði þjóðarvilji sá að halda áfram aðildarviðræðum. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur auk þess sagt, að samningur þurfi að vera ásættanlegur fyrir þjóðina svo ríkisstjórnin samþykki samninginn. Þ.e. ríkisstjórnin er tilbúin að ganga frá borðinu, náist samningsmarkmið Íslands ekki að mestu eða öllu leyti.

Hvað Baudenbacher hefur fyrir sér með þessari fullyrðingu, kom ekki fram í frétt um málið, sem vitnar í LinkedIn færslu hans. Honum er að sjálfsögðu frjálst að hafa hvaða skoðun sem er, en gott væri að styddi fullyrðinguna einhverjum rökum. Þau fylgja ekki.

Hann nefnir atriði sem oft hafa verið nefnd, að ekki sér hægt að semja við ESB og því sé ekki um raunverulegar aðildarviðræður að ræða. Hann bætir síðan við, að pólitískur fórnarkostnaður verði of mikill til að bakka út úr viðræðunum. Vissulega er það rétt, að tveir flokkar í ríkisstjórninni eru að leggjast undir fallöxina, svo mikið yrði áfallið ef niðurstaða í seinni þjóðaratkvæðagreiðslunni yrði Nei. Á móti væru aðrir flokkar jafn illa settir, yrði niðurstaðan að aðildarsamningur væri samþykktur.

Stærsta atriðið þessu tengt, er hins vegar ekki hvað ESB segir, heldur hvort náist að ljúka viðræðunum og þar með gerð aðildarsamnings áður en boðað verður til þingkosninga. Mun sú ríkisstjórn, sem þá tekur við, hafa sama áhuga á inngöngu í ESB og mun hún spyrja þjóðina hvort halda eigi ferlinu áfram. Það á svo margt eftir að gerast áður en af inngöngunni verður og fjölmörg atriði geta stöðvað framgöngu málsins.