Fullyrðing: Atvinnuleysi mun aukast við inngöngu í ESB
Óljóst - ólíklegt
Þessi fullyrðing sést reglulega og yfirleitt er hún tengd við atvinnuleysi í löndum ESB. Vandinn við þessa fullyrðingu er, að ekkert land, sem sótt hefur um aðild, hefur verið jafn lengi og Ísland hluti af fjórfrelsinu (sem felur í sér frjálst flæði vinnuafls) við upphaf aðildarviðræðna, hvort heldur miðað er við 2009 eða núna 2026, ef það yrði niðurstaðan. Ísland er því í yfir 30 ár búið að laga sig að hinum sameiginlega vinnumarkaði.
Reynslan hefur sýnt okkur, að vinnuafl er frekar sveigjanlegt á þessum sameiginlega vinnumarkaði og leitar þangað sem vinnu er að fá, en annars heim til sín. Þetta á jafnt við um íslenska ríkisborgara sem ríkisborgara ESB-landa. Hvers vegna ætti þetta að breytast við inngöngu í ESB? Af hverju ætti fólk, sem verið frjálst um för innan EES og getað leitað eftir vinnu í hverju af löndunum 30 (kannski ætti að halda Licthenstein utan við þetta, þar sem landið er með undanþágu frá frjálsri för til landsins) allt í einu að fara að streyma til Íslands eftir mögulega inngöngu, bara vegna þess að Ísland yrði hluti af EES sem ESB-ríki en ekki EFTA-ríki? Ég hef enn ekki séð sannfærandi rök fyrir þessu.
Vissulega getur allt gerst, en það gæti virkað í báðar áttir.
Ég met þessa fullyrðingu með óljósa og ólíklega niðurstöðu. Fyrir utan, að þetta er að mínu mati jafn líklegt hjá EFTA-ríkinu Íslandi og ESB-ríkinu Íslandi.
Fullyrðing: Atvinnuleysi ungs fólks mun aukast við inngöngu
Óljóst!
Aftur er þörf á að vísa til þess, að Ísland er búið að vera hluti af sameiginlegum vinnumarkaði EES í yfir 30 ár og því líklegt að þegar hafi náðst jafnvægi í flæði vinnuafls á milli landa svæðisins. En síðan að aðalefninu.
Ég komst að því við skoðun, að atvinnuleysi ungs fólks er frekar mikið innan EES, þó ég viðurkenni að ég horfi ekki til Lichtenstein. Ástæðan er frekar einföld, a.m.k. mun einfaldari en mér hafði dottið í hug, þegar ég skoðaði þetta fyrst fyrir nokkuð mörgum árum. Þegar ég var í framhaldsskóla og síðar háskóla, var ekki algengt að nemendur væru að vinna með námi. Núna þykir þetta sjálfsagður hlutur. Nemendur, sem skrá sig í atvinnuleit með námi, eru flokkaðir sem atvinnulausir. Skiptir þá ekki máli hvort skoðað er ungt fólk á Spáni, Finnlandi eða Íslandi. Allir sem vilja vinna með námi og hafa ekki fengið vinnu, eru skráðir atvinnulausir í þessum löndum.
Á Íslandi er ýmist sagt að 19% eða 10,1% fólks á aldrinum 16-24 ára sé atvinnulaust. Fyrri talan tekur með námsmenn sem vilja vinna með námi, en sú síðari ekki. Sambærilegar tölur fyrir Finnland eru 23% og 10,9%. Ég veit ekki hvort það teljist alvarlegt atvinnuleysi, að fólk í fullu námi fái ekki hlutastarfið sem það sækist eftir með námi. Alvarlegra finnst mér, að fólk sem ekki er í námi, sé án atvinnu. Einn hópur er þarna á milli, þ.e. þeir sem eru í námi með vinnu, þá líklega í lotubundu fjarnámi en vill vinna fullan vinnudag. Ein útgáfa af síðasta hópnum eru þeir sem ætluðu að vera í námi með vinnu, en enduðu án vinnu.
Enginn getur fullyrt með vissu, að atvinnuleysi meðal ungs fólks muni aukast við inngöngu í ESB vegna inngöngunnar. Þetta eru í besta falli ágiskun sem sett er fram til að hræða. Á sama hátt getur enginn sagt með vissu, að atvinnuleysi meðal ungs fólks muni ekki aukast, þó ekki verði af inngöngu. Það er svona eins og að halda því fram núna, að næsta sumar verði veðrið frábært (nú eða ömurlegt). Við getum verið með ágiskanir, en stjórnum ekki útkomunni. Hvort sem við göngum í ESB eða ekki, þá þarf að fjölga störfum á Íslandi sem henta vissum hópum. Ekki bara ungu fólki, heldur líka þeim sem eru ekki með fulla starfsorku. Þessu til viðbótar er ómögulegt að meta áhrif annarra þátt, s.s. gervigreindar, á atvinnutækifæri ungs fólks næstu mánuðina, hvað þá næstu árin. A.m.k. er fullyrðingin um að atvinnuleysi ungs fólks muni aukast við inngöngu ákaflega opin og til að mæla hvort hún sé rétt þarf að skilgreina hvaða aukning atvinnuleysi telst tilkomin vegna inngöngunnar og hvaða aukning vegna annarra þátt.