Vextir og verðbólga

Fullyrðing: Vextir munu lækka eftir inngöngu

Líklegt

Ég hef fylgst með þróun vaxta innan ESB í ansi mörg ár. Hjá flestum þjóðum hefur gengið vel að halda vöxtum lágum í samanburði við okkur, þó ekki öllum. Þau, sem eiga það sammerkt að hafa náð að halda vöxtum lágum, eru flest með evru sem landsmynt eða tengingu við hana. Einnig hafa vextir í Svíþjóð haldist lágir.

En vextir eru eitt og vextir eru annað. Almenningur á Íslandi lítur líklega helst til húsnæðislánavaxta, meðan fyrirtæki og sveitarfélög til almennra skuldabréfavaxta. Á þessu tvennu getur verið talsverður munur. Hvað húsnæðislánavexti varðar skiptir líka verðtryggingin máli, en gera má ráð fyrir að hún hverfi af lánum til almennings við inngöngu. Vonandi verður hún horfin fyrr.

Brotthvarf verðtryggingarinnar af húsnæðislánum er stærra mál, en flestir gera sér grein fyrir.

Maður, sem ég hef átt í samskiptum við nokkrum sinnum um svipað efni, hélt því fram, að við ættum að tala í raunvöxtum, vegna þess að bara raunvextir skiptu máli. Ég hef oft andmælt svona málflutningi, því ég veit ekki betur en að fólk greiði alla vextina, sama hve stór hluti þeirra telst raunvextir.

En munu vextirnir lækka? Við getum búist við því og lagst á bæn, en ekkert er öruggt. Til þess að vextir lækki, þá mega vextir innan ESB ekki hækka og við verðum a.m.k. að binda krónuna við evruna. Meðan krónan leikur lausum hala, þá stjórnast vaxtastigið af því hvernig tekst til við hagstjórnina. Sagan segir okkur, að það sé ekki létt verk. Kaldhæðnin er síðan, að til að geta tekið upp evru, þá þarf að hemja verðbólguna og halda krónunni stöðugri. Leiðin að fyrirheitnalandinu er því um torsóttaslóða, þá sömu og við höfum fetað frá 1995 með yfir 300% verðbólgu og meðalvexti Seðlabankans líklega um 6,5%. (Ekki er hægt að reikna vextina nákvæmlega, þar sem hluta tímans miðaði Seðlabankinn við útlánsvexti, en notaði innlánsvexti frá maí 2014.) Hvers vegna ætti eitthvað betur að ganga að ná árangri í efnahagsmálum innan ESB, en sem meðreiðarsveinn í EES.

Mér finnst þó líklegt, að innan ESB opnist nýir möguleikar og erlend fjármálafyrirtæki sæu tækifæri í að opna starfsemi hér. Þess vegna tel ég líklegt, að vextir lækki miðað við núverandi stöðu heimsmála.

 

Fullyrðing: Verðbólga mun lækka eftir inngöngu

Líklegt, en óljóst

Í fullyrðingunni um vextina, nefndi ég að á gildistíma EES-samningsins hafi verðbólga á Íslandi verið yfir 300% til apríl í ár, en yfir 220% sé miðað við samræmda vísitölu neysluverðs (SVN). Ég leitaði uppi upplýsingar um verðbólgu í þeim löndum ESB sem eru næst Íslandi og hafa verið í ESB frá 1995. Samkvæmt þeim tölum, sem ég fann, var næst hæst verðbólga í Bretlandi 112,3% (miðað við tölur eigin hagstofu, VNV) og 109,6% (miðað við SVN). Tölur fyrir Noreg reyndust 109,7% og 106,8%. Holland og Belgía fóru líka yfir 100% bæði fyrir VNV og SVN. Svíar voru með lægstu verðbólguna eða 63,0% (VNV) og 75,3% (SVN) og Finnar þar rétt fyrir ofan.

Ég skoðaði ekki hver verðbólgan í Svíþjóð og Finnlandi var árin fyrir inngöngu í ESB, en þessum tveimur löndum hefur innan ESB gengið vel að ráða við verðbólguna, annað allan tímann með eigin mynt og hitt fyrst með eigin mynt og síðan evru. Baráttan við verðbólgu ætti því ekki að snúast um myntina heldur trúverðugleika hagstjórnarinnar.

Getum við, samkvæmt þessu, búist við að verðbólga lækki eftir inngöngu í ESB? Svarið við þessu er Já, með fyrirvara um að ekki er endilega vilji til þess. Þá vísa ég til þess, að við höfum haft svo mörg tækifæri undanfarin ár til að víkja af leið óþarfa verðbólgu, en ekki gripið tækifærið. Ríkisstjórnir í bunum hafa ekki skilið hlutverk sitt í að hemja verðbólgu, Seðlabankinn er eini seðlabanki í nágrannalöndum okkar sem vill lemja verðbólguna niður með háum vöxtum, þó verðbólgan sé innflutt og vextirnir hafi ekki áhrif á verðbólgu valdinn, frekar en að stinga sér í gegn um ölduna, eins og aðrir seðlabankar hafa gert.

Hvernig mun ganga að koma verðbólgunni niður snýst, að mínu mati, að mestu um trúverðugleika hagstjórnarinnar og hann hefur skort á Íslandi. Þegar þeir, sem bera ábyrgð á hagstjórninni, tala ítrekað um að koma í veg fyrir harða lendingu, þá bendir ýmislegt til að þeir trúi ekki á getu sína. Hagkerfið á ekki að lenda, hvorki harkalega né mjúklega. Því á stöðugt að fljúga í hæfilegri og jafnri hæð. Meðan öðrum þjóðum virðist takast það þokkalega, þá er okkur Íslendingum það fyrirmunað. Þess vegna er ég bara hóflega bjartsýnn á að verðbólga haldist lág til lengri tíma, þ.e. við og undir verðbólgumarkmiðum, komi til þess að Ísland gangi í ESB. Ég tel hins vegar ólíklegt, að verðbólga lækki varanlega niður í verðbólgumarkmið, ef við verðum áfram utan ESB.