Fullyrðing: Viðskipti við ESB ofmetin
Rangt og rétt!
Eru viðskipti við ESB ofmetin? Bara af þeim sem ekki skilja virkni umskipunarhafna! Þau, sem ekki skilja þessa virkni, halda að öll vara sem fer til umskipunarhafna í tilteknu landi, endi í því landi. Hin vita, að varan endar í öðrum löndum. Og það sama virkar í hina áttina. Stór hluti innflutnings til landsins fer um umskipunarhafnir í Evrópu, en vara er kemur frá framleiðendum og birgjum út um allan heim. Þannig kemur mikið af ávöxtum frá Bretlandi, en fáum sögum fer af ávaxtarækt Breta. Af þessu sést, að það þarf ríkan vilja til að rangtúlka að vegna þess að vara fari með skipi til tiltekinnar hafnar, þá endi varan í sama landi. Og frá hinum endanum, þarf ríkan vilja til, að rangtúlka að vegna þess að varan kemur með skipi frá tiltekinni höfn, þá sé uppruni hennar í sama landi.
Lengi hefur verið vitað, að Rotterdam í Hollandi er umskipunarhöfn talsverðs hluta útflutnings frá Íslandi. Hluti þeirrar vöru, sem þangað berst frá Íslandi, fer um borð í lestir sem færa hann á áfangastað bæði innan og utan Evrópu, og hluti fer um borð í önnur skip, sem sigla með til hinna ýmsu landa um allan heim. Þetta hefur ekkert verið neitt launungarmál og hefur hver sem það hefur viljað, getað nálgast hagskýrslur með þessum upplýsingum. Þeir sem ekki hafa lagt það á sig, nota einföldustu útgáfu upplýsinganna.
Sama á líka við Danmörku, Bretland, Pólland, Bandaríkin og líklega fleiri lönd.
Holland hefur þannig orðið á pappírunum helsta útflutningsland Íslands, þó löndin eigi frekar lítil viðskipti sín á milli.
Ekki þarf að kafa djúpt til að sjá, að útflutningur til Hollands er ætlað að fara til annarra landa. Enn grynnra þarf að kafa til að sjá, að stór hluti útflutnings til Hollands er í USD, sem segir þó ekkert um hvert varan er að fara, en hún er ekki að enda í Hollandi.
Jafn kjánalegar eru staðhæfingar um að viðskipti við Pólland hafi allt í einu aukist svona mikið. Þið rétta er, að í landinu eru hafnir sem nýtast við útflutning til Austur-Evrópu, Þýskalands, Austurríki og Grikklands og jafnvel enn sunnar og austar.
Í nýlegri skýrslu var því ekki verið að fletta ofan af einhverju leyndarmáli með því að benda á þessi alþekktu sannindi. En rétt er, að margir hafa ofmetið viðskipti Íslands við ESB lönd, meðan aðrir hafa átta sig fullkomlega á þessu fyrirkomulagi. Staðreyndin er líklega, að enginn veit með vissu í hvaða landi útflutingur frá Íslandi endar. Auðveldara er að átta sig á uppruna vöru sem kemur hingað til lands.