Tilgangur

 

Inngangur

Eftir því sem ég skoða undanfara og eftirmála hrunsins betur, þá hef ég komist að því hve almúginn er endurtekið dreginn á asnaeyrum. Hann er blekktur, ósannindi borin fyrir hann, þeir sem hafa völdin fara sínu fram, loforð eru svikin, stefnumálum er kastað fyrir róða um leið og komið er í ráðherrastóla, grunngildi eru bara fyrir aðra að standa við.

Væntanlegur er út fyrsti hluti bókar sem fengið hefur titilinn Á asnaeyrum. Hún er mín sýn eða greining á því sem gerðist fyrir hrun og ekki síður eftir það. Í þessum fyrsta hluta mun ég fjalla um árin fram að hruni, deila á peningastefnu Seðlabanka Íslands, fer yfir ýmis ummæli ráðamanna síðasta árið fyrir hrun, skoða fjármögnun bankanna og velti fyrir mér hvort eitthvað hefði getað komið í veg fyrir hrunið. Loks birti ég málamynda “ákæru” á hendur helstu gerendum í anda Emile Zola.

Ég á þegar efni í marga bókarhluta til viðbótar, en ef ég ætti að bíða eftir að allt sé útgáfuhæft, þá þyrfti lesendur að bíða einhver ár í viðbót. Í því efni fjalla ég um baráttu Hagsmunasamtaka heimilanna meðan ég var þar í stjórn, aðgerðir stjórnvalda og fjármálafyrirtækja fyrir skuldsett heimili og fyrirtæki, stofnun nýrra banka, yfirfærslu lánasafnanna og síðast en ekki síst gengistryggðu lánin, Árna Páls-lögin og lykildóma sem gengið hafa. Nú ætla ég ekki að lofa neinu um útgáfudag, en eins og staðan er í dag, þá gæti næsti hluti komið út í haust.

Eins og staðan er, þá verður bókin gefin út á Amazon og verður eingöngu hægt að kaupa hana þar, hvort heldur sem kilju eða sem rafbók. Verðið hefur ekki verið ákveðið og verður tilkynnt hér á þessari síður, þegar þar að kemur.

Vettvangur þessarar síðu verður einnig að fjalla um öll þau önnur tilfelli, þar sem mér finnst íslenskur almenningur vera dreginn á asnaeyrum. Ný og gömul.


Myndir 2009-08-08 020.jpg

Tilgangur

Svo lengi sem ég man eftir því, þá hefur alls konar kjaftæði verið haldið að almenningi.  Það er svo sem gert í öllum löndum, en einhvern veginn er eins og engin takmörk séu á því hverju er dempt yfir íslenskan almenning.  Ráðherrar, sem brjóta lög, sitja sem fastast.  Ríkisfyrirtæki eru sett í hendur einkavina.  Haldið er að fólki upplýsingum, sem ekki standast.  Kosningaloforð eru svikin nánast áður en lokið er við að telja upp úr kjörkössunum.  Spillingin kraumar í öllum pottum.  Stjórnmálamenn, embættismenn og valdafólk telja það heilaga skyldu sína að ljúga að almenningi við hin ólíklegustu tækifæri, skreyta sannleikann, snúa út úr og vera með fals og blekkingar.

Tilgangur síðunnar er ekki bara að vekja athygli á bókinni Á asnaeyrum, heldur einnig að fjalla um allt hitt, eftir því sem tækifæri gefst og tími er fyrir hendi.  Einnig mun ég færa yfir á síðuna stóran hluta af bloggfærslum mínum og eitthvað af facebook-póstum.  Það mun gerast hægt og bítandi.


 

Fig. 3

Comparing pellentesque mattis.

Praesent eget neque risus. Etiam pulvinar mauris risus, et ornare mi venenatis vestibulum. Class aptent taciti sociosqu ad litora torquent per conubia nostra, per inceptos himenaeos. Quisque consectetur vestibulum risus vitae vehicula. Maecenas pulvinar nibh sit amet massa varius malesuada. Nunc in dolor volutpat, fermentum orci auctor, suscipit arcu.

 

 

 

Summary

Nulla facilisi. Proin lacinia pulvinar odio, et convallis augue iaculis eget. Class aptent taciti sociosqu ad litora torquent per conubia nostra, per inceptos himenaeos. Sed aliquet leo ex, condimentum vestibulum purus pharetra vel. Vestibulum in ante vel nunc placerat rutrum eu ac nisi. Etiam elementum ultrices volutpat.