Næsta fórnarlamb er fundið - Hófleg nýting tekjustofna best!

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 6.12.2011.

Ætla menn ekki að læra.  Nú hefur fjármálakerfið og spákaupmenn þvingað fram tvö ótrúlega stórtæk inngrip stjórnvalda í fjármálamarkaðinn á 3-4 árum.  Árið 2008 greip bandaríski seðlabankinn og bandarísk stjórnvöld til þess að dæla í sameiningu um 8,4 billjörðum (trillions) USD (7,7 billjarða frá Seðlabanka Bandaríkjanna og 700 ma. frá ríkisstjórninni, sjá $7.7 Trillion to Wall Street - Anything to Keep the Banksters Happy! | Truthout og Wall Street Banks Earned $13 Billion in Profits from Secret Fed Loans Worth $7.7 Trillion) inn í ofurstór bandaríks fjármálafyrirtæki sem voru of stór til að falla og gerðu þau í leiðinni ennþá stærri.  "Lán" voru veitt á lágum vöxtum sem notuð voru til að kaupa ríkisskuldabréf á aðeins hærri vöxtum og niðurstaðan var meiri hagnaður hjá þessum fyrirtækjum en meira segja á mestu uppgangsárunum.  Vextina borga skattgreiðendur, en peningarnir voru prentaðir hjá Ben frænda.  Á sama tíma austan ála Atlantshafsins dældu írsk, bresk og þýsk stjórnvöld háum upphæðum inn í fjármálastofnanir og sitja skattborgara þessara landa uppi með reikninginn.  USA 0 - Vogunarsjóðir 3 og ESB 0 - Vogunarsjóðir 2.

Stjórnendur stóru fjármálafyrirtækjanna á Wall Street eiga í stökustu vandræðum með að fela brosið á vörum sínum, enda mala þeir gull.  Lehman Brothers varð að vísu fórnarlamb, en með réttu hefðu þau átt að vera mun fleiri.

Já, bragðið heppnaðist fullkomleg.  Mikill vill meira og það reyndu þeir vestanhafs, en þá sagði Obama nei.  Til að bæta gráu ofan á svart, þá var hann svo ósvífinn, að krefjast þess að menn borguðu ekki bónusa, þannig að "lánunum" var skilaði í snarhasti.

Menn voru greinilega komnir með blóðbragð í munninn.  Leitin að veikasta hlekknum hófst.  Gerð var atlaga að Portúgal og Spáni, en bæði löndin stóðust áhlaupið í bili.  En það gerði Grikkland ekki.   Yfirstjórn ESB og Seðlabanki Evrópukomu í veg fyrir að Grikkir færu íslensku leiðina, þ.e. gefa kröfuhöfum langt nef.  Búið er að dælan hundruð ef ekki þúsundum milljarða evra inn í evrópskar fjármálastofnanir, svo síhungraðir úlfar fjármálakerfisins fá sitt.  Allt er þetta vegna þess að vogunarsjóðir og bandarískir stórbankar hafa lagt stórar upphæðir undir í afleiðum og hætt við að sú spilaborg hrynji, ef í ljós kemur að þeir hafi veðjað á rangan lit.  Til að halda stjórnvöldum við efnið hefur áhlaup verið gert að hverju fórnarlambinu á fætur öðru.  Grikkland er fallið, Ítalía er komin í gjörgæslu, frönskum stórbanka var bjargað með þögulli neyðaraðgerð aðfararnótt þriðjudags í síðustu viku, 1.400 milljarða evru björgunarsjóður hefur verið stofnaður.  ESB 0 - Vogunarsjóðir 5 og USA 0 - Vogunarsjóðir 4.

Það er alveg með ólíkindum hvernig menn geta hagað sé eins og hálfvitar með peninga, án allrar alvöru áhættustýringar, og síðan greiða skattborgara reikninginn.

Nú eru menn búnir að átta sig á því, að ekki er meiri pening að fá frá Evrópu.  Vogunarsjóðirnir tapa líklegast mest á því að evrusamstarfið liðist í sundur, þar sem þá geta þeir ekki þvingað Þýskaland til að bjarga Grikklandi.  Markmiðið var jú alltaf að komast í þýska ríkiskassann, enda eftir mestu að sælast þar.  Þetta er eins og með aðra nytjastofna.  Menn verða að nýta þá af skynsemi svo þeir gefi vel af sér á hverju ári.  Rányrkja leiðir til hruns.

Þá er um að gera að leita á önnur mið.  Nytjastofnar Asíu hafa ekki verið nýttir í um 20 ár, þannig að þar sjá menn tækifæri.  Ekkert er varið í þá í Afríku og Suður-Ameríka er ekki eins stór og Asía.  Spurningin er hvort við munum á næstu mánuðum og kannski 2 - 3 árum lesa um hrun á Indlandi, Malasíu, Indónesíu, Kóreu, Filippseyjum og öðrum öflugum löndum á svæðinu og í framhaldi af því í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi.  Ég læt mér ekki detta í hug að hrægammar fjármálakerfisins verði nokkru sinni saddir.  Þeir munu halda áfram að leita að fórnarlömbum svo lengi sem ríkisstjórnir og seðlabankar halda sig það að einstakar fjármálastofnanir séu of stórar til að falla, að allar ríkisskuldir skuli greiddar og menn ráðast ekki að meinsemdinni sem er óábyrg útlánastarfsemi fjármálageirans.

Stærstu mistök stjórnmálamanna og stjórnenda seðlabanka um allan heim er ekki að hafa sofið á verðinum í aðdraganda þess hildarleiks sem núna er í gangi.  Vissulega voru það alvarleg mistök og verðskulda að allir sem hlut eiga að máli fari launalausir á eftirlaun.  Nei, stærstu mistökin eru að reyna að breiða fyrir mistökin sín.  Það er gert með því að gera stöðutöku vogunarsjóðanna áhættulausa.  Í hvert sinn sem stefnir í tap þeirra sem höguðu sér á óábyrgan hátt, þá er þeim nóg að hóta einhverjum minni máttar og Ben frændi eða Angela reiða fram svívirðilega háar upphæðir.  Ef ég gerði þetta, þá væri ég kærður fyrir fjárkúgun, en þar sem þetta er gert í nafni fjármálastarfsemi, þá telst þetta ekki bara löglegt heldur eðlileg viðskipti!  Eina leiðin til að stoppa þetta er að gera mönnum grein fyrir að þeir bera sjálfir ábyrgð á sinni áhættustýringu.