Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 6.9.2010.  Efnisflokkur:  Svindl og svik
Þeir eru ennþá til í þessu landi, sem telja að þeir sem tóku  gengistryggð lán, hafi átt að gera sér grein fyrir þeirri gengisáhættu  sem lántökunni fylgdu og því sé það fáránlegt að leiðrétta þessi lán.   Rétt er það, að gengistryggðum lánum fylgdi gengisáhætta.  Enginn mælir  því mót.  Flestir þurftu að skrifa upp á skjal, þar sem þeir viðurkenndu  það.  Málið er að það sem gerðist hér á landi voru skipulögð fjársvik.
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Eftir að hafa legið yfir málinu í gær til að leggja verjanda til útreikninga, þá er ég kominn á þá skoðun að þetta mál henti illa sem fordæmisgefandi mál.  Fyrir því eru ýmsar ástæður en þessar eru helstar…
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 2.9.2010.  Efnisflokkur:  Umræðan, Rökleysa
Mælarnir sem Jóhanna les af mæla greinilega ákaflega jákvæðar stærðir.  Rétt er að hagvöxtur mældist á fyrri hluta ársins, að verðbólgan hefur minnkað, atvinnuleysi dregist saman, gengið styrkst og stýrivextir hafi lækkað.  En mæla þessir mælar hve margar íbúðir hafa færst frá heimilunum til lánadrottna, hve margar eignir bíða uppboðs,
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 2.9.2010.  Efnisflokkur:  Neytendaréttur
Allsherjarnefnd Alþingis hefur lagt fram frumvarp um hópmálsókn.  Er  þetta ánægjulegt skref, þó seint sé, og mun gjörbreyta allri baráttu  vegna brota öflugra aðila gegn einstaklingum.  Leiðin sem valin er að  stofnað er málsóknarfélag sem aðilar með líkar kröfur gegn sama aðila  geta gengið í.
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Ég skil ekki tilgang FME með því að lengja frest fjármálafyrirtækja til að brjóta lög.  Þrátt fyrir skýringar Seðlabanka og FME á lagaskilyrðum fyrir því að setja tilmælin, þá féllu þær skýringar um sjálft sig, þegar í ljós kom, að Seðlabankinn hafði komist að þeirri niðurstöðu í maí 2009, að gengistrygging lána væri ólögleg…
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Sama er hvar litið er til í íslensku efnahagslífi, alls staðar blasa við sömu staðreyndir.  Yfirskuldsetning vegna falls krónunnar og yfir 50% verðbólgu síðustu ára er að kafsigla öllu.  Bæjarfélög eru á heljarþröm, orkufyrirtæki eru sokkin í hyldýpi skulda, rekstrarfyrirtæki eru skuldsett upp í rjáfur og heimilin sjá ekki til sólar vegna himin hárra lána…
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 30.8.2010.  Efnisflokkur:  Umræða, Gengistrygging
Ég var beðinn áðan um umsögn í nafni Hagsmunasamtaka heimilanna vegna  greinar Sigurðar.  Mig langar að birta hana hérna ásamt því að ræða  grein Ármanns Jakobssonar á Smugunni.
Hagsmunasamtök  heimilanna fagna því að líf sé að færast í lögfræðilega umræðu um  forsendubrest verðtryggðra lána.  Fyrst gerðist það með dómi Héraðsdóms  Reykjaness í máli ÍAV vegna íþróttamannvirkjanna á Álftanesi og núna  fjallar Sigurður G. Guðjónsson um þetta í grein sinni. 
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Þessi furðulega framsetning Orkuveitu Reykjavíkur á gjaldskrárhækkun fyrirtækisins sýnir að full þörf er til að skilja á milli framleiðslu fyrirtækisins á raforku og dreifingarinnar.  Komið hefur fram í fjölmiðlum að það er kostnaður við virkjanir sem eru að kaffæra OR…
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Sigurður Einarsson fer mikinn í viðtali við Fréttablaðið.  Velti ég því stundum fyrir mér hvort maðurinn skilji það klúður sem hann varð valdur að og hafi yfirhöfuð haft hæfi til að reka, sem stjórnarformaður, stærsta banka Íslands.  Hægt væri að tiltaka aragrúa atriða, þar sem mann setur hljóðan við lesturinn…
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Á föstudaginn var birt lögfræðiálit Logos fyrir Lýsingu, þar sem efast er um að 13. og 14. gr. vaxtalaganna standist fjórfrelsi EES samningsins.  Það vill svo til að ég átti um daginn langt og gott samtal við starfsmanna ESA um þessi mál.  Þar komum við m.a. inn á skilning á fjórfrelsinu hvað varðar bann við gengistryggingu…
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Jæja, þá er næsta stig afneitunarinnar í gangi.  Fyrsta stigið er að segja ekki frá, næsta stig að segja það ekki sitt hlutverk að greina frá, þriðja að gera lítið úr aðallögfræðingi sínum og núna að gera lítið úr álitinu/minnisblaðinu almennt.  Hvenær ætla menn að átta sig á því að það að birta ekki minnisblað aðallögfræðings Seðlabanka Íslands er meiriháttar klúður og hefur mögulega raskað verulega fjármálastöðugleika í landinu?…
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Ég svaraði Merði á síðunni hans í gær og vil birta það svar hér:
Mörður, ég get alveg tekið undir að velta má fyrir sér hvort Gylfi hafi gert þetta viljandi eða ekki (eða þannig skil ég orð hans). Mér finnst þetta snúast um þrennt…
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, kemur með sína skýringu á svari sínu til Ragnheiðar Ríkharðsdóttur og heldur áfram að hagræða sannleikanum.  Eða er hann að opinbera að hann hvorki skildi spurningu Ragnheiðar né minnisblað Sigríðar Rafnar Pétursdóttur…
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Það fer ekkert á milli mála, að það sem við höfum orðið vitni að allt frá hruni og hugsanlega fyrir hrun er uppsett leikrit.  Vissulega breyttist efnisþráðurinn eftir að bankarnir hrundu, enda fengum við nýjan handritshöfund, en tilgangurinn er sá sami. Hann er að koma sem mestum eignum frá almenningi og almennum fyrirtækjaeigendum í hendur fjármagnseigenda…
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Viðtal Helga Seljan við Gylfa Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, í Kastljósi var alveg ótrúlegt.  Ég veit ekki hversu oft Helgi gaf Gylfa færi á að segja að kannski hafi hann misskilið eitthvað eða hann hafi kannski ekki alveg farið með rétt mál, en Gylfi roðnaði frekar og svitnaði en að nýta sér þessi tækifæri…
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 10.8.2010.  Efnisflokkur:  Gengistrygging
Í síðustu færslu minni (Æi, Gylfi, hættu að hagræða sannleikanum)  sýni ég nokkur dæmi um það hvernig Gylfi leggur sig fram við að hagræða  sannleikanum.  Í umræðunni á Alþingi 1. júlí, 2009 var Gylfi spurður út  í lögmæti myntkörfulána.  Hann vissi nákvæmlega hvað hann var spurður  um og þó hann hafi notað orðin "lán í erlendri mynt"
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, virðist ekki hætt að fara með rangt mál.  Nú hefur Pressan eftir honum að hann hafi ekki sagt ósatt á Alþingi, þar sem hann hafi verið spurður út í erlend lán.  Skoðum fyrst fyrri hluta fréttar Pressunnar…
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Már Guðmundsson svaraði flestum spurningum spyrjanda að stakri prýði í Kastljósinu í kvöld.  Jafnvel betur en hann gerði sér grein fyrir og kannski betur en hann ætlaði sér.  Í einu svarinu viðurkenndi hann, að hræðsluáróðurinn sem var hér uppi eftir dóma Hæstaréttar og fram yfir dóm héraðsdóms hafi bara verið tómt bull…
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Seðlabanki Íslands hefur birt lögfræðiálit LEX lögmannsstofu og minnisblað Sigríðar Logadóttur, aðallögfræðings bankans.  Á bankinn þakkir skyldar fyrir það…
 Read more 
    
    
    
  
  
    
    
    
    
    
    
      Það var merkilegt viðtal við Már Guðmundsson, seðlabankastjóra, í sjónvarpsfréttum.  Fyrst færir hann í stílinn, þegar hann segir að umræðan hafi verið á fullu í þjóðfélaginu um þessi mál í maí í fyrra.  Síðan gerir hann lítið úr aðallögfræðingi Seðlabankans og gefur í skyn að skoðun hans sé harla ómerkileg…
 Read more