Hinn 29. ágúst gengur þjóðin að kjörborðinu og greiðir atkvæði um hvort veita eigi ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur umboð til að taka upp að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Kjósendur geta merkt við Já, sem þýðir að þeir eru samþykkir að veita slíkt umboð, eða Nei, sem þýðir að þeir vilja ekki veita umboðið. Mig langar í þessum pistli, sem mun lengjast eftir því tilefni er til fram að kjördegi og jafnvel fram yfir hann, að skoða ýmsar fullyrðingar sem settar hafa verið fram og verða settar fram á næstu vikum. Mun ég reyna að greina hvað er rétt, hvað er óljóst/óvíst og hvað er rangt í fullyrðingunum. Hvert atriði verður skoðað og reynt að skýra út hvers vegna það er líklega rétt, hvað veldur óvissu og rangar fullyrðingar leiðréttar.
Telji einhver, að skýringar mínar séu rangar, þá er bara að koma leiðréttingum á framfæri.
Tilgangurinn með færslunni er að hjálpa fólki við að byggja ákvörðun sína 29. ágúst á réttum upplýsingum. Að rök fyrir hvoru vali séu rétt. Mér er nákvæmlega sama hvort kjósandi mun merkja við Já eða Nei í kjörklefanum, þó það sé mín skoðun, að þjóðin eigi heima í Evrópusambandinu.
Efnisyfirlit: